
Saga Guðríðar Þorbjarnardóttur er stórbrotin saga konu í hættulegum heimi. Áhorfendur ganga um borð í víkingaskipið Íslending og fara í ferðalag með Þórunni Ernu Clausen sem leikur Guðríði. Sagan hefst á ferðalagi frá Íslandi og vestur um haf og endar á suðurgöngu Guðríðar þar sem hún hittir páfann í Róm.
Þótt efni leiksins byggist á ferðum þessarar víðförlustu konu miðalda er verkið í raun ekki ferðasaga, heldur myndar það ramma um sögu konu sem þorir að fara óhefðbundnar leiðir og taka á þeim sorgum og sigrum sem því fylgir.
Ferðasaga Guðríðar eftir Brynju Benediktsdóttir er hér í nýrri uppfærslu Maríu Ellingsen. Þórunn Erna Clausen leikur Guðríði, Snorri Freyr Hilmarsson hannar leikmynd, Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsir og Sveinbjörg M. Ingibjargardóttir hannar búninga.
Sýningin fór upphaflega í sigurför um Bandaríkin og Kanada í tilefni árþúsundamótanna og það sýndi sig að þessi leikræna túlkun var til þess fallin að vekja áhuga á þessum merkilega þætti Íslendingasagnanna sem tengir okkur og Vesturheim. Ekki er hægt að finna betri stað til að fá að upplifa söguna um Guðríði en um borð í Íslendingi.
Víkingaheimar opnuðu fyrir tæpu ári síðan í glæsilegu nýju húsnæði þar sem skipið Íslendingur, völundarsmíð Gunnars Marel Eggertssonar, er miðpunkturinn.
Ferðasaga Guðríðar er mögnuð upplifun og fróðleg og skemmtileg sýning.
Miðasala fer fram í gegnum midi.is
Allar nánari upplýsingar á verkinu fást í síma: 422-2000 á milli 11 og 18 alla daga.
Póstlisti Víkingaheima
Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá nýjustu fréttir og tilkynningar frá okkur



